Refund policy
Skilmálar og skilyrði
Upplýsingar um seljanda
Maruska ehf. Kt. 520124-3300. Maruska ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta við pantanir án fyrirvara. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Greiðsla
Hægt er að greiða fyrir vörur með millifærslu eða með greiðslukorti í gegnum greiðslugátt Verifone. Millifærsla þarf að berast innan við 6 klst frá pöntun.
Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Afhending vöru
Hægt er að fá pantanir sendar með póstinum um allt land, sjá afgreiðslustaði. Allar pantanir eru afgreiddar á 0-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun. Af öllum pöntunum dreift af póstinum gilda eftirfarandi skilmálar.
Sendingarkostnaður er fer eftir verðskrá póstsins. Sjá verðskrá.
Ósóttar pantanir
Hafi vara ekki verið sótt innan 3 mánaða eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu. Maruska. áskilur sér rétt á að endurgreiða ekki ósóttar pantanir.
Forpantanir
Þegar um forpöntun er að ræða er skal lesa vel yfir upplýsingar sem gefnar eru hverju sinni. Forpöntun merkir að varan er ekki til á lager en þú hefur möguleika á því að senda inn pöntun og tryggja þér eintak af vörunni. Athugið að ekki er hægt að hætta við forpantanir né fá þær endurgreiddar þar sem þær eru sérpantaðar fyrir viðskiptavininn, hægt er að skipta vörunni í aðra vöru sé þess óskað sérstaklega. Vegna covid eru uppgefnar dagsetningar á forpöntunum án ábyrgðar og geta tafir átt sér stað án fyrirvara.
Playroom ehf. ber ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegum töfum á forpöntunum. Við munum upplýsa þig þegar pöntunin þín er tilbúin til afhendingar. Greitt er fullt verð fyrir vöruna við forpöntun, líkt og af venjulegum pöntunum.
Vöruskil
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Ekki er hægt að skila nærfötum. Þetta gildir þó ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útsöluvörur. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu nema vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þ.e. ef vöru er skilað þegar hún er á tilboði eða útsölu er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu eftir að varan hefur verið móttekin. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist til Maruska.
Ef skila á vöru með skiptimiða þá er hægt að skipta vörunni fyrir aðra vöru.
Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið maruska(at)maruska.is áður en vöru er skilað.
Hægt er að skila vörum gegn gjaldi með póstinum. Kostnaðurinn dregst frá upphæðinni sem viðskiptavinur fær endurgreidda eða í formi inneignarnótu.
Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Útsölur og vöruskil:
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Persónuupplýsingar
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um. Sjá skilmála um vafrakökur.
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það tekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.